Stefndu alltaf hátt, því þá styttist leiðin á toppinn.
02.07.2006 21:58:21 / Pippa

Brand new blogg...hehe

www.petralind.bloggar.is

www.petralind.bloggar.is

www.petralind.bloggar.is

www.petralind.bloggar.is

www.petralind.bloggar.is

...Endilega tékkið á þessu...

Ætla prufa skipta og sjá hvernig gengur

Hvíldu í friði blog.central.is/pippa

Amen


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 23:43:52 / Pippa

Ótitlað...

Jæja það er nú heldur langt síðan ég bloggaði síðast, eiginlega aðeins of langt!:S Spurning hvort maður ætti að nenna þessu í sumar? Það er ekkert að gerast í mínu lífi nema vinna, sofa, borða, æfingar og keppa...áhugavert! Endilega tjáið ykkur í comment ef þið viljið fá fréttir af þessu lífi ;)

 

 



Annars er ég í tómu tjóni bara alltaf hreint, minn hausverkur þessa dagana er að hugsa hvað ég á að gera í vetur! Allar uppástungur vel þegnar takk...Ég bara get ómögulega ákveðið mig! Það er annaðhvort að fara bara heim og þar af leiðandi ekki æfa fótbolta, sem ég stórlega EFAST um að ég meiki! Eða fara til Reykjavíkur í skóla þar sem ég get æft fótbolta, það er + ....Eða verið áfram á Akureyri þar sem ég get líka farið í skóla og æft fótbolta...Eða bara spurning um að fara út fyrir landssteinana og gera eitthvað. Ohhhh djöfull er ég pirruð...Svo er eini skólin sem ég ætlaði að sækja um í rvk bara út úr myndinni þar sem að umsóknarfresturinn var bara til 5.júní!! halló hvað er það? Og asninn hún Petra fór ekki að skoða heimasíður og eyðublöð skólanna fyrr en 6.júní ...frábært...En ég ætla ekki að kvelja ykkur lengur með þessari umræðu...

 

 



Fótboltinn er bara á sínum stað, ég nenni eiginlega ekkert að skrifa um hann! Mér er búið að ganga mjög vel í svona flestum leikjunum, svo að ég get ekki verið neitt annað en ánægð með það! Oleeeee...

Svo er bara vinnan, er að vinna frá 10 – 3 , sjúklega erfitt sko! Haha eða þannigJ en þetta er samt fínt, ég kvarta ekki! Er bara að þjálfa litlu krílin...

En ég nenni ekki að segja neitt meira, ætla bara fara svífa inn í minn draumaheim! Ef maður væri bara alltaf í draumaheimi...zzzzzzzzzzzzzzzzzz

 

 



-Petra-

 

 



P.s. Jóna Benný þetta blogg var tileinkað þér, svo ég heimta kvitt! Þú ert nú eina sem heldur þessari síðu gangandi félagi! ;)


» 24 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 14:34:05 / Pippa

Homesweethome

Jæja þá er ég komin heim í fjörðinn fagra....

Nú er ég nokkurnvegin búin að tæma dótið mitt af vistinni og flytja það í Hamar, svo að þetta fer allt að smella saman þarna fyrir norðan! Svo byrjaði deildin á þriðjudaginn þar sem við tókum FH-ingana og kenndum þeim að spila fótbolta! 4-1 sigur hjá okkur í fyrsta leik sem verður að teljast nokkuð gott;) Hálsinn minn stóð sig vel í leiknum bahahahaha var bara teipuð frá öxlum og upp að höku liggur við, svo að það tók mig alltaf 5 mínútur að fara í hverja hreyfingu, en það reddaðist nú sem betur fer, hann verður vonandi komin í lag fyrir næsta leik!:) Mörkin úr leiknum eru hérna fyrir þá sem nenna að skoða þetta, okkar leikur er sýndur næst síðast minnir mig..;)

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4297175

Annars er það bara hangs og leti núna sko, allir að vinna og svona þannig ég hangi bara til 5 á daginn eða eitthvað! Það er ágætt, ákvað samt að skella mér heim því ég hef ekkert að gera heldur fyrir norðan, byrja ekki að vinna strax svo að...Svo er það sjálfsögðu Eurovision í kvöld og afmæli hjá mömmu þannig að nú sit ég bara hérna ein heima og bíð eftir að klukkan verði 7 eða eitthvað svo ég geti fengið kökur..:P

 

 



En hef ekki neitt að segja, ætlaði bara að láta vita af mér!

Þangað til næst

-Petra-

 

 




» 18 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 01:01:44 / Pippa

Sumarfrí:)

Ég er komin í sumarfrí, ég er komin í sumarfrí...:) vúhúúúú!

 

 



LOKSINS...er skólinn búin! Ég nenni ekki að blogga um skólann eða neitt því að hann er hvort sem er leiðinlegur og nú er aaaallt sumarið framundan:D ég get ekki beðið sko...

Annars þá hef ég ekki frá miklu að segja, laugardagurinn var fínn skal ég segja ykkur. Vaknaði um 12 leitið og fór svo í Hamar á einhverja leikmannakynningu og svona ægilegt stuð, þar var einhver svona Þórsdagur og verið að kynna leikmenn og skrifa undir einhverja styrktarsamninga og eitthvað! Það var nú ekkert geðveikt nema þá bara að hitta fólkið og fá kökur og svona..:P Svo eftir það fórum ég,Rakel,Bríet og Elma í bónus að versla fyrir kvöldið, því að við vorum að fara grilla! Brjáluð stemmning þar á ferð..Anna var líka þarna með okkur. Og einkenndist kvöldið af tómri gleði;) Grilluðum kjöt, pulsur og hambó...og svo fengum við okkur jarðaber með súkkulaði í eftirrétt! Oooog svo var bara skellt sér beint á trampolínið, gerðum það reyndar fyrir mat og síðan aftur eftir mat. Veit nú ekki hvort að það var gáfuleg hugmynd hjá mér að fara aftur eftir matinn því að ég meiddi mig að sjálfsögðu, sem orsakar það að akkuratt núna get ég ekki litið til hægri,upp né niður. Jújú hálsinn í maski! Hvað gera bændur þá??? Ég er ekki beint sátt því það er leikur á þriðjudaginn og svona:S En þetta reddast vonandi, læt einhvern kíkja á þetta á mánudaginn. En semsagt skemmtilegur hittingur og takk fyrir kvöldið stelpur!;)

 

 



Jáá...Svo veit ég ekki hvað ég geri í dag, Þór – Ka eru að keppa á Akureyravelli kl. 2 svo maður fer nú að horfa á það og styðja sína menn! Sem er btw ekki KA...Svo er æfing eftir leikinn sem ég neyðist líklegast til að horfa á. Helvítis trampolín ætla aldrei á svona skrapatól aftur. Hehe...Svo kannski klára ég að pakka niður og flytja dótið mitt í Hamar, svo að ég geti loksins flutt endanlega af þessari heimavist. Það verður ljúft, ég og Eyrún fórum og skoðuðum íbúðina í dag og alles, alveg ljómandi fín og miklar breytingar á henni síðan í fyrra svo að ég kvarta ekki!:) Þannig að bara endilega kíkja í heimsókn ef að leið ykkar liggur norður (fyrir ykkur sem búið ekki á Ak) :)

 

 



En já, segja þetta gott í bili? Júúú held það sko! Set inn nokkrar myndir frá gærkvöldinu (áðan) ...veit aldrei hvað ég á að skrifa því að kl. er bara rétt yfir 12 og ég vildi gjarnan vera lengur úti en ekki heima að blogga, en þar sem ég get ekki hreyft mig þááá fór ég bara heim! Svona er lífið, manni er refsað fyrir að vera hrakfallabálkur!?!?;) hehe...

 

 



 

Elma og Rakel hressar í eldamennskunni....



 

 



 

Þessi hópmynd tókst nú ekki alveg hjá þér Bríet mín...hehe en annars skemmtilegir svipir;)



 

 



 

oooog brosa....;)



 

 



 

Ekki annað hægt en að skella inn einni af matarborðinu....Maturinn var góður sko! Þó að fólk hafi ekki alveg verið með það á hreinu hvort maturinn væri ennþá hrár eða ekki..En þetta smakkaðist gott:)



 

 



 

Og svo ein í lokin af mér og Bríet með eftirréttinn góða!! :D



 

 

-Petrilíus Bonaparte Proppé-




» 13 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 16:41:52 / Pippa

Núverandi!!

Núverandi tími: 16:39
Núverandi föt: ljósblá peysa og svartar kvartbuxur
Núverandi skap: gott
Núverandi hár: bara fínt, pínu úfið!
Núverandi pirringur: prófin…
Núverandi lykt: puma ilmvatn
Núverandi hatur: Skólinn
Núverandi dót í vösum: tómir vasar!
Núverandi uppáhaldsleikari: Kuno Becker sem leikur í Goal
Núverandi uppáhaldsleikkona: Jennifer Aniston
Núverandi hljómsveit: The Oasis
Núverandi söngvari: ??
Snorri Snorra er að gera góða hluti með lagið sitt..
Núverandi land: Ísland
Núverandi e-mail: pippa_14 at hotmail.com
Núverandi texti sem lýsir þér: æfingin skapar meistarann
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Læra!
Núverandi skartgripir: engir
Núverandi áhyggja: prófin sem eru eftir
Núverandi ósk: Liggja á sólarströnd í útlöndum og vera útí fótbolta!!
Núverandi farði: natural…
Núverandi eftirsjá: engin
Núverandi skemmtun: Lemja Ingu Þórey leikurinn sem ég var í áðan, hehehe
Núverandi ást: nammikassin sem ég á inní skáp:P
Núverandi staður: Herbergi 2102 á vistinni
Núverandi bók: Uppeldi, í uppeldisfræði 103
Núverandi íþrótt: Fótbolti
Núverandi tónlist: Robbie Williams, Angels
Núverandi lag á heilanum: Champagne Supernova - Oasis
Núverandi blótsyrði: veit ekki
Núverandi msn manneskjur: Er ekki að tala við neinn
Núverandi desktop mynd: mynd af mér …
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: læra og fara á æfingu
Núverandi manneskja sem ég er að forðast: Inga Þórey

 

Mynd dagsins er af Kuno Becker!! ;)

 

Kærlig hilsen Petra


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 02:49:46 / Pippa

Deildarbikarmeistari...

Ætla skella inn einu stuttu bloggi hérna!! Helgin í sjálfu sér búin að vera skemmtileg, byrjaði ekki skemmtilega á föstudaginn því þá fór ég í stærðfræðipróf og já þeir sem þekkja mig vita að það er ekki mitt sterkasta fag!! En svo seinna um daginn þá keppti ég úrslitaleik við Fylki í deildarbikarnum í Boganum og það má segja það að ég hafi sjaldan spilað jafn skemmtilegan leikJ Leyfum myndunum að lýsa því hérna á eftir,  segja kannski meira en mörg orð!! Hehe...(þetta hljómaði spes)

En já svo byrjaði laugardagurinn frekar snemma, vaknaði við símann en þá voru Rakel og Elma að hringja og spurja hvort ég nennti ekki með þeim í sund, og ég skellti mér í föt og beint út í sundlaug, hef sjaldan á ævinni verið jafn úldin því ég gat ekki einu sinni opnað augun þegar ég kom í sund ég var svo þreytt! En þetta var fínasta sundferð,sól og blíða og svona, og ég er ekki frá því að ég hafi nælt mér í smá brúnku! Svo eftir sundið fórum við á Bláu könnuna og fengum okkur að borða og svo fór ég bara heim að hanga. Svo kl. 7 þá fór ég út að borða á greifann með stelpunum í fótboltanum svona í tilefni dagsins og eftir það þá fórum við nokkrar heim til Bjökku og eitthvað...svaka stuðJ Ég sem ætlaði að vera dugleg að læra,en það tókst að sjálfsögðu ekki, sálfræðipróf og svona á mánudaginn!! Skólinn er gjörsamlega að gera útaf við mig þessa dagana. En bara 3 próf eftir og þá er ég frjááááááls og þarf líklegast aldrei aftur að fara í VMA! Nice ;)

En ég ætla fara koma mér í háttinn....

 

 



 

Stemmari í klefanum fyrir leik...Ég og Inga Dís hressar...;)



 

 



 

Gott pós Eyrún....



 

 



 

Þetta er ennþá betra...Selma á hverju ertu? ;)



 

 



 

Einbeitingin var mikil hjá sumum í hálfleik....



 

 



 

En sumir tóku pósið á þetta....Hvað var ég að spá?:haha:



 

 



 

Bikarinn loksins komin á loft....;)



 

 



 

Jíhaaaaaaaaa;)



 

 



 

Hópmynd í lokin.....



 

 

*Bless*



 


» 15 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 12:56:25 / Pippa

Komin heim - ferðasaga

Jæja þá tekur venjulega lífið við aftur, það er að segja skólin og vistin. Er komin aftur til Akureyrar (Heim) eftir ca. mánuð í burtu. Prófin byrja á morgun hjá mér og ég er komin í sumarfrí 12 vá ég get ekki beðið það verður geðveiiiiiiikt!
Rúmenía var algjör snilld, vá þetta er án efa skemmtilegast í heimi að fá tækifæri til að fara svona út með landsliðinu...
Ætla koma með smá ferðasögu hérna:
Á laugardaginn áður en við fórum út þá spiluðum við einn leik við mfl.kvk hjá Breiðablik sem eru btw núverandi Íslandsmeistarar. Að sjálfsögðu sigruðum við þær 2-1 við mikla ánægju...Ég meina Ásthildur hvað? hehehe... En þetta var ágætisbónus fyrir okkar lið að vinna þær, bara svona uppá að efla sjálfstraustið og liðsandann!!
Sunnudagurinn var tekin snemma, vaknaði um hálf 5 og dreif mig uppá KSÍ og þaðan með rútu til Keflavíkur, síðan tók við flug til Parísar og svo annað flug frá París til Rúmeníu. Það voru 5 persónulegar töskur sem skiluðu sér ekki frá París til Rúmeníu og að sjálfsögðu var mín taska ein af þeim, þannig að ég var brókalaus,nestislaus,skólabókalaus,fatalaus og  bara allslaus í einu orði sagt fyrsta daginn. En neinei til að bæta gráu ofan á svart þá erum við líka með svona KSÍ töskur sem innihalda æfingagallana og keppnisgallana og boli og svona sem maður á að vera í meðan á mótinu stendur, það var 1 KSÍ taska sem gleymdist líka í París, og að sjálfsögðu var það líka mín...þannig að þegar ég kom uppá hótelherbergi þá var ég ekki með neitt nema takkaskóna mína því að þeir voru í bakpokanum mínum..frábært! Ég semsagt fór að sofa í bolnum sem ég ferðaðist í – mæli ekki með því, það er ógeðslegt!
Svo alla hina dagana þá var vakið kl. 9 og farið annaðhvort út að skokka eða á æfingu, svo beint í morgunmat eftir það og svo var bara chill uppá herbergi fram að hádegismat, svo eftir hádegismatinn var alltaf æfing eða leikur og svo bara kvöldmatur og chill eftir það. ;)
Hótelið sem við vorum á var mjög fínt, glæný fótboltaakademía með 3 völlum fyrir utan og flottheitum. Það var að vísu svolítið útúr borginni svo að við gerðum lítið annað en að hanga bara uppá herbergjum eða leika okkur með tæknibolta alla ferðina þegar var frjáls tími. Öryggisgæslan þarna var frekar mikil, það var svona girðing kringum allt svæðið sem við vorum á, og þegar við keyrðum inná svæðið þá var bara kall sem vann við það allan daginn að opna hliðið því að það var ekki hversem er sem mátti koma þarna inn, hjá kallinum voru líka 2 varðhundar!! Svo var alltaf kall sem vann bara við það að standa fyrir utan hótelið allt kvöldið og passa það, meira segja þegar við fórum útí fótbolta eittkvöldið að leika okkur og báðum hann að opna gerfigrasvöllinn sem var alveg upp við hótelið þá stóð hann á gerfigrasinu allan tímann og leit ekki af okkur þann tíma sem við vorum að leika okkur...þúst halló var ég í Bandaríkjunum eða! Liggur við að maður mátti ekki anda...hehe eða svona næstum....En þetta var nú samt alveg ljómandi gaman;)
Leikirinir voru kannski ekki alveg jafngóðir og ferðin sjálf en þetta var erfiður riðill og svosem engin sem bjóst við því að við værum að fara rústa þessu, vorum með Englandi, Danmörku og Rúmeníu í riðli. Fyrsti leikurinn skíttapaðist á móti Englandi 7-1, svo töpuðum við 2-1 fyrir danmörku það var reyndar leikur sem við hefðum vel getað náð jafntefli eða unnið hefðum við bara byrjað leikinn strax á fyrstu mínútu en ekki 70. mínútu, og svo unnum við Rúmeníu 4-0 í síðasta leik. Ég sat á bekknum fyrstu 2 leikina en fékk svo að spila allan síðasta leikinn á móti Rúmeníu og að
Jsjálfsögðu unnum við hann og ég hélt meira að segja hreinu..nokkuð sátt sko!  Fyrsta skipti í byrjunarliði og svona, það var nett, fékk geðveika gæsahúð þegar ég fékk loksins að standa á vellinum og syngja þjóðsönginn og bara allt vá þetta var nett!! Þetta er bara svona tilfinning sem að kemur og maður gleymir aldrei, mér hefur aldrei fundist íslenski þjóðsöngurinn neitt spes en þarna var ég nokkuð stolta af því að vera Íslendingur!;) hehe...
En ég held að þetta sé bara orðin ágætisferðasaga hérna, skelli inn örfáum myndum núna. Ætla síðan að setja allar myndirnar á myndasíðuna við tækifæri;) enjoy...

Hótelið okkar, ég átti appelsínugulu svalirnar á 1 hæð..:)

Síðasta kvöldið, ég og Elísa vorum að éta birgðirnar sem við áttum að borða, semsagt brauð með Mikluuuuuu súkkulaði!:P nammm

oleeeeeeee.....

Íslenskt já takk!!!

Stemmning á bekknum gegn danmerku....;)

Byrjunarliðið gegn Rúmeníu sem við unnum 4-0 ....;) oleeeeeeeee

Ánægðar í leikslok....Elísa Páls (fjölni), Ég og María (Fylki)

Skoðunarferð um Búkarest...Hluti af hópnum hérna á planinu fyrir framan næst stærstu byggingu í heimi....;)

Hópmynd fyrir framan hótelið...myndarlegur hópur!;)

Nóg í bili.....

Petra kveður


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 18:33:21 / Pippa

Letilíf;)

Jæja þá er páskafríið á enda og bloggfríið mitt líka...Ákvað að blogga ekkert um páskana, fínt að taka sér frí frá tölvunni enda er maður nógu mikið í henni þegar skólinn er! ;)

Það er nánast hægt að segja að þetta páskafrí hafi uppfyllt allar þær kröfur sem ég gerði til þess, en það einkenndist aðallega af góðum mat og útiveru...;) ásamt því að hitta allt skemmtilega fólkið aftur. En það sem stóð uppúr var að sjálfsögðu það hvað maður komst oft á skíði til að rifja upp gömlu skíðataktana, það var geðveikt....váá ég get varla lýst því hvað það var gaman. Þegar ég kom heim af landsliðsæfingunum á laugardaginn þá hafði pabbi tekið skíðin mín með sér upp í Egilstaði þegar hann náði í mig og ákváðum við að skella okkur á skíði þar sem ég skemmti mér konunglega með gömlu skíðakumpánunum Rögnu, Ingu þórey og Agnesi og renndi mér liggur við stanslaust til kl. 11 um kvöldið..:) Endurtökum þetta á næsta ári það er alveg klárt mál!!!! J

Svo hafði ég hugsað mér að taka það rólegt á Páskadag en það voru víst ekki allir á sama máli, heldur var maður rifinn fram úr rúminu kl. hálf 6 um NÓTTINA til að fara út að labba...já toppiði það?! En þá fór ég ásamt mömmu og Kristínu frænku í páskagöngu í páskahelli til að horfa á sólarupprásina, einstaklega skemmtileg og vel heppnuð ferð myndi ég segja þó að klukkan hafi ekki verið mikið, en ég sætti mig nú við það þegar ég var lögð af stað. Svo kom ég heim og opnaði páskaeggið mitt að sjálfsögðu Nói númer 7 og svo var skellt sér aftur á skíði. Á annan í páskum þá fór ég á fótboltaæfingu með Fjarðabyggð yfir á Eskifjörð og svo fór ég uppí sumarbústað þar sem ég fór á skíði og lét draga mig á snjósleða og svona gaman...og svo var það bara matur hjá ömmu og afa og fótbolti á sparkvellinum um kvöldið með Andra,Hugin og Alexöndru ásamt skrilljón litlum krökkum sem eigna sér alltaf sparkvöllin..en það var fínt þegar við loksins sættumst á það að spila öll saman. “Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir” ...Liðunum var skipt þannig að ég og Alexandra vorum saman með fullt af litlum krökkum, og Andri og Hugin saman með einhverjum litlum krökkum og að sjálfsögðu var það stelpuliðið sem bar sigur úr bítum með mig og Alex fremstar í flokki...rúúúúúst!:) En nóg um það, held að þetta hafi verið þokkaleg lýsing á páskafríinu mínu.

Núna er ég bara ennþá fyrir austan,fer síðan til reykjavíkur á föstudaginn og svo til Rúmeníu á sunnudaginn....:) vá ég get ekki beðið sko það verður geðveikt!!! Svo kem ég bara beint heim í próf 1 maí eða eitthvað!;)

 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ætla fara setja mig í stellingar fyrir framan sjónvarpið þar sem að Arsenal – Villareal er að fara byrja, undanúrslitin í meistaradeildinni..;) Go Arsenal!!!

 

                                      

                                    

 

Leiteeer ..

 

P.s. skelli inn myndum hérna bráðum....;)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 01:25:20 / Pippa

Blogg

Þar sem að ég hef lítið að gera í augnablikinu þá ætla ég að henda inn einni færslu hérna...

Var að horfa á Idolið áðan, ég svosem vissi úrslitin fyrirfram, Snorri er búin að vera bestur síðan þessi keppni byrjaði...Bubbi og Sigga voru alltaf að segja hvað þau hafi verið lengi að taka eftir honum en ég fór að halda með honum alveg frá því í byrjun og viti menn, kjeellin stendur uppi sem sigurvegari;) ...Spurning hvort ég sé með betra tóneyra en þessi dómnefnd? Maður spyr sig.

Annars þá hef ég sjaldan á ævinni verið jafn spennt og ég er núna eftir að fara heim í fjörðinn fagra, ég vona að það verði geðveikt mikill snjór uppá skarði svo ég geti farið á skíði svona eins og í gamla daga ...ef það er ekki bara best í heimi þá veit ég ekki hvað! Biðjum fyrir snjónum.

En já best að halda áfram að pakka, mér verður víst hent útaf vistinni kl. 4 á morgun svo að það er eins gott að drífa sig því ég kem ekki aftur fyrr en í maí, svo að ég á eftir að taka mikið frekar til....mmmmmm sumarið er að nálgast;)

Haha meðan ég man, þá var ég að lesa svona málshætti og rakst á þennan....

 

Digur rass þarf víða brók  

Sá sem fann uppá þessum hlýtur að hafa verið nokkuð klár í kollinum – það bara getur ekki annað verið.

Bless

 




» 14 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 00:21:48 / Pippa

Páskafrí

Isss ég hef nú verið frekar slöpp hérna undanfarna daga! Netið búið að liggja niðri á vistinni, og maður þurfti að kaupa sér netaðgang til að fá það aftur og ég hef bara ekki nennt því fyrr en núna í dag, þá gafst ég alveg uppá því að komast ekki á netið svo að ég splæsti nokkrum hundraðköllum í þetta...;) svo að það má segja að þetta sé verðmætt blogg!!

 

 



En annars er það að frétta af mér síðan síðast að ég keppti loksins heimaleik hérna um daginn í Boganum, unnum Fjölni 2-1 í hörkuspennandi og skemmtilegum leik þar sem við hefðum by the way getað skorað svona 5 mörk til viðbótar!;) Ég var nokkuð sátt við mitt bara svona miðað við fyrsta leik í langan tíma. Gaman að því.

En já er nánast komin í páskafrí, 2 tímar á morgun og svo kemur þetta LANGÞRÁÐA frí....:) eða frí? Ég veit svosem ekki hvað ég á að kalla það, það er að sjálfsögðu alltaf frí útaf fyrir sig þegar það er ekki skóli en ég er samt að fara til Reykjavíkur á sunnudaginn að keppa og svo flýg ég heim á Neskaupstað og verð þar til miðvikudags og fer þá suður á landsliðsæfingar fram á laugardag og þá fer ég aftur heim og svo líklegast aftur suður í vikunni eftir það!! Gott frí...alveg magnað!;) Allavega eins og staðan lítur út í dag þá er hún svona, því að U-19 er að fara til Rúmeníu strax eftir páska svo ef að ekkert kemur uppá og lífið leikur við mig þá er ég búin í skólanum og mæti síðan bara galvösk í prófin í maí...nice!

 

 



En annars þá ætlaði ég bara að láta vita af mér....

Þangað til næst, með PáSkAfRíSkVeÐjUm

-Petra- ;)

 

 




» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 19:08:27 / Pippa

Lífiiið..

Halló...
Ég veit ekki hvað það er, en lífið er svo skrýtið!!!
Stundum þá er allt svo frábært og stundum er allt alveg ómögulegt og gjörsamlega allt svart! Þess á milli kemur svona tómleikatilfinning þar sem maður veit ekkert hvernig manni á að líða eða í hvorn fótinn maður eigi að stíga. Skrýtið!!
Hjá mér var þetta svona fyrir áramót, svona ágúst-október þá lifði ég svo hátt uppi og allt var geggjað, það var eins og lífið gæti ekki orðið slæmt aftur! Svo kom nóvember og þá bara sá ég ekki ljós á vegi mínum í töluverðan tíma......
Núna frá janúar til mars þá hef ég síðan verið hvorugt. Hvorki lifað hátt uppi né of langt niðri. Heldur bara svona á milli, eiginlega lifað í tómleika og fundist eitthvað vanta í líf mitt. En samt hafði ég ekki hugmynd um hvað það var sem vantaði, það var bara eitthvað! Mér leið örlítið svona eins og lífið hafi bara verið sett á “pause”. Skrýtið!!
Ég hlakka til að finna að hverju ég er að leita...en það er eitthvað í undirmeðvitundinni sem segir mér að ég sé að leita að einhverju ákveðnu, hvað það svosem getur nú verið, og ég eigi eftir að finna það ef ég hlusta á hjartað!! Við sjáum til hvernig það kemur til með að ganga......Endilega commentið á það hvort þetta hafi hent ykkur!! ;);)

En svona að öðru þá fer þessi skólavika að klárast, og þá eru ekki nema bara 2 vikur eftir, næsta og svo ein vika eftir páskafrí...:) hversu nett er það!!  Ég held ég hafi aldrei á ævinni hlakkað jafn mikið til að skólinn klárist eins og núna, ég er löngu farin að telja dagana og séð sjálfa mig fyrir mér hlaupa “FRJÁLS” útúr þessum skóla og beint út í góða veðrið og loksins farið í fótbolta á grasi...mmmm ég löva það:)
Svo er bara leikur á sunnudaginn við Fjölni, loksins sem við fáum að keppa eftir að hafa þurft að fresta 3 leikjum hjá okkur af 6 í allan vetur...
En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag og leyfa ykkur bara að “melta” hugsanirnar hér að ofan!!
Kem með nýtt og ferskt blogg eins fljótt og ég nenni..:)
Og já alveg rétt, Bjarney þetta er bara fyrir þig.....ég lofaði að setja mynd af þér í bloggið mitt svo ég verð að standa við það bara ;) enjoyy yourself ! hehehe

Ég varð að sjálfsögðu að troða mér með á myndina því ég vildi ekki birta hina myndina sem ég á af þér á netinu....:haha: neinei bara grín! En þessi er tekin semsagt á Neistaflugi í fyrra...hell yeeeaaaaah

 

Kv.Petra


» 17 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 00:18:08 / Pippa

Memories

Ég á mér draum um að koma á stað,

Þar sem hafið að hömrunum nær

Ég á mér draum um að koma á stað

Þar sem hjartað í hafinu slær

Við eigum samleið og stefnum á það

Að eyða sumrinu í Neskaupstað....

Hver þekkir ekki þetta lag? ;)

Ohhhh....ég sakna svo allra gömlu góðu tímana heima í Neskaupstað!!! Ég vildi að ég væri ennþá lítil þegar maður gerði bara allt sem manni datt í hug og þurfti ekki að hugsa um eitt né neitt! :S

Eins og t.d. fótboltans þar sem ég var að æfa með BESTA FLOKK í öllum heiminum, ég,Alex,Arna,Saló,Lotta,Guðbjörg og bara allir sem voru að æfa þegar Heimir var að þjálfa...Ég held að þessi flokkur verði seint toppaður, þetta var best tími eveeeeeer. Svona eftir á að hyggja, þó að hjólaferðirnar okkar út í sveit á æfingar þegar við náðum ekki að redda okkur farið hafi ekki alltaf verið vinsælar, þá sakna ég þeirra ...Stelpur þið vitið hvað ég er að tala um! ;)

Og svo skíðaárin, ef það var ekki bara skemmtilegast í heimi að fara uppí fjall strax eftir skóla og koma svo heim seint á hverju kvöldi alveg gjörsamlega búin á því....

Svo allir krakkarnir sem maður lék sér við, fór í leiki í hverfinu, fótbolta á Bakkavelli og uppí fjall með nesti í góðu veðri og bara ALLT....

Eeeen lífið breytist ...svo mikið er víst! Hvort sem það er jákvætt eða neikvætt!

 

En svona að öðru þá fór ég bara til Reykjavíkur um helgina, eina ferðina enn...Fór bara á æfingar, eða réttar sagt æfingu í þetta skiptið...því ég fór í eitthvað þrekpróf á laugardeginum sem var bara vægast sagt ERFITT...úfff ég gat ekki staðið í lappirnar það sem eftir var dagsins!! En ég held ég hafi bara staðið mig vel í því, allavega var ég þokkalega sátt við frammistöðuna þessa helgi...svo er bara að bíða og vona!! Hópurinn sem fer til Rúmeníu verður tilkynntur eftir nokkra daga...:) allir að biðja fyrir mér!!!

 

En jæja ég held að þetta sé bara orðið gott, hef voða lítið að segja eins og er....Mæli samt eindregið með Football Manager sem er btw leikur sem er að gera það gott þessa dagana í lífi mínu...;)

 

Endum þetta á mynd hérna í tilefni dagsins...

 

 

 

 

 

eeennnn sé þig...8)



Þvílík fegurð..;)





 


» 16 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 16:34:58 / Pippa

Ferðasaga

Jæja nú jæja ....(látum hann hlæja)

Ég lofaði víst að koma með ferðasögu frá Reykjavík hérna inn á veraldarvefinn...Er að spá í að hafa hana í myndaformi með textaívafi...how do you like iceland?

Varð eiginlega að skella þessu inn í dag þar sem að ég er að fara til Reykjavíkur aftur á morgun svo að...ég ætlaði nú ekki að hafa uppsafnaðar reykjavíkusögur, best að ljúka þessari af..;)

 

 



En já ég fór semsagt til Reykjavíkur um síðustu helgi með íþróttabrautinni minni í skólanum, og var það bara nokkuð gaman skal ég segja ykkur...Ferðin byrjaði eiginlega á því að við fórum á Idolið sem var svona upplifun útaf fyrir sig...gaman að sjá þetta svona með eigin augum! Það mátti sko ekki heyrast múkk í manni þarna, og svo var bara einhver kall sem stóð alltaf neðst og byrjaði að klappa þegar við MÁTTUM klappa, og svo byrjaði hann alltaf að hlæja þegar Simmi & Jói sögðu eitthvað ..því það var skylda að hlæja að þeim þó að þeir segðu eitthvað sem var ekkert fyndið þá átti maður samt að hlæja bara..:) hehe pínu fyndið!!

 

 



 

 



 

Eins og sjá má þá var gríðarleg spenna í mannskapnum að fara inn á Idolið, þó sérstaklega einum aðilia, en ég nefni engin nöfn!! :haha:



 

 



 

og svo pósaaaaaa....;)



 

 



 

Það var GRÍÐARLEG stemmning þarna eins og sjá má...8)



 

 



 

Magga, á hverju ertu?????:haha:



 

 



 

Svo að sjálfsögðu ein myn af Idolinu mínu....Snorri þú manst nr. mitt! ;)



 

 



 

Steinka hitti líka Idolið sitt..en hann er dottin út svo að þetta er ekki jafn verðmæt mynd og myndin af Snorra!! ;) hehehehe



 

En svo var bara vakið okkur á laugardagsmorguninn kl. Hálf 9 og brunað í SKVASS...og ég verð nú bara að segja að þessari íþrótt mæli ég sko með, sjitt hvað þetta er gaman!!! ;) allir að prufa skvass!

 

 



 

 Já ég skemmti mér mjög vel þarna eins og sjá má!!



 

 



 

Strákarnir hressir....Björn farðu í klippingu!!!!! :haha:



 

 



 

Annað pós hérna...eitt á hverjum stað sko! :) sætaaar



 

Eftir skvassið þá fórum við í smáralindina og versluðum svona örlítið, það er nátturlega möst...en svo brunuðum við bara í Vesturbæinn (KR-ingar ég veit, en þetta var samt fínt) og fórum í skylmingar, það tók einhver kall á móti okkur þar og kenndi okkur svona undirstöðuatriðin í skylmingum og sýndi okkur sverðin og svona...og að sjálfsögðu fengum við að prufa búningana sem þau eru í.. Ég gæti örugglega aldrei æft þetta þar sem að ég fékk bara innilokunarkennd í grímunni sem við vorum með, þetta var bara eitthvað 70 kg flykki..eða svona næstum!

 

Fólk beið spennt eftir að byrja, sumir tóku forskot á sæluna og skelltu á sig hjálminum, bara svona til þessa að prufa! ;)

 

Þarna er kallinn að kenna okkur grunnsporin í þessu sporti.....

 

Ég var ekki lengi að læra, og áður en ég vissi af var ég bara komin með sverð í hönd!!! :D hehe...

 

hahaha...pós hér líka!! vantar bara hjálminn á hausinn....bandið er samt ekki svona langt uppí klofinu á mer eins og sýnist vera, þetta eru ógeðslegir gallar!!! :haha:

 

 

Íhaaaaaaa....ekki myndi ég vilja mæta þessum!! hjálmurinn komin á þarna sko...Magga,Rakel, Bríet og Ég...;)



 

 



Síðasta íþróttin sem við kynntum okkur í þessari ferð var svo Keila, sem eflaust allir hafa prufað. Vorum reyndar með bara einhverja kennara þarna að kenna okkur að henda rétt og svona, eins og ég hef nú alltaf verið góð í keilu þá komst ég að því þarna að tæknin mín var ekki alveg rétt, svo að ég þurfti að læra allt uppá nýtt og þróa nýju tæknina!! Hehehe

 

 



 

 Kellan eitthvað að sýna Bríet hvernig á að gera þetta!!



 

 



 

Góður þessi Steinunn;)



 

 



 

Spurning um að leggja skóna á hilluna og snúa sér að keilunni bara..;)



 

 



 

Bríet stóðst ekki freistinguna....Sögur segja að hún hafi átt í töluverðum erfiðleikum með að ná afturendanum út úr þessu....enda finnst mér það ekki skrýtið..;)



 

Jájá ....síðan um kvöldið þá fórum við nokkur bara út að borða og í bíó á Big momma´s house 2...hún er sæmileg sko...grenjaði ekkert úr hlátri samt. Síðan héldum við eitt stykki “íþróttamót” uppí skóla svona til að stytta okkur stundir um kvöldið og kepptum í fótboltaspili og borðtennis...Þar sem að mér og Dóra fannst við hafa unnið því hinir svindluðu bara, er það ekki alltaf þannig annars;) 

 

 



 

Rakel og Ísak....þau halda því fram að þau hafi unnið, en ég tek það ekki í mál! ;)



 

 



 

Magga og Björn skíttöpuðu mótinu...finnst það ekki skrýtið miðað við þessa mynd þar sem þau virðast vera hugsa um eitthvað allt annað..:haha:



 

 



 

Ég og Dóri héldum hinsvegar einbeitingunni allan tímann...



 

 



 

oooog....uppskárum eftir því, að okkur fannst, takk fyrir pent ;)



 

 

 

En jæja held að þetta hafi bara verið hin fínasta ferðasaga...



 

þangað til næst....



 

Petra:!:




» 26 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:11:44 / Pippa

???

Ég er ekki alveg að nenna því að blogga akkuratt núna þar sem að puttarnir á mér eru 7faldir því mér er svo kalt, það er sko svona 10 stiga frost úti og ég var inní boga og þar er KALDARA 8| arrrggg.....en allavega þá ætla ég bara að skella þessu inn hérna og að sjálfsögðu vonast ég til þess að þið svarið þessu bara svona upp á fönnið ;) hver veit nema ég launi ykkur það á einhvern hátt? :) Ég kem svo með nýtt og betra blogg þegar puttarnir lagast, sem inniheldur meðal annars ferðasögu frá reykjavík og myndasyrpu ...;)

Nafn mitt?
Hvar kynntumst við?
Hvað er miðnafnið mitt?
Hefuru hitt mig?
Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er?
Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
Hversu vel þekkiru mig?
Reyki ég?
Trúi ég á Guð?
Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
Aldur minn?
Afmælisdagur?
Háralitur?
Augnlitur?
Á ég systkyni?
Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
Hver er minn besti eiginleiki?
Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
Er ég fyndin/nn?
Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
Hef ég einhveja sérstaka hæfileika?
Spila ég á e-ð hljóðfæri?
Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera?
Höfum við kysst?
Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni?
Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
Hvaða vin held ég mest uppá?
Hef ég hjálpað þér?
Hefur þú hjálpað mér?
Þykir þér vænt um mig?
Er ég sannur vinur?
Elskarru mig?
Langar þig að faðma mig?
Langar þér að kyssa mig?
Langar þér að byrja með mér

Ef þú gætir gert eða sagt eitthvað sérstakt við mig núna, hvað mundi það vera?

Takk fyrir pent....Been & Gone ;)

Petraaaaaaaaaaa


» 17 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 22:43:16 / Pippa

Alive

Jæja ég held að það sé komin tími á eitt blogg, langt síðan síðast...eeen fyrir því eru margar ástæður sem ég nenni ekki að vera telja upp hér!!

Helgin afstaðin og verð ég að segja að hún var bara nokkuð skemmtileg sko, á föstudeginum þá hittumst við, Rakel,Eva og Magnea heima hjá Rakel og horfðum á idolið og höfðum gaman, stelpukvöld skiluru? ;)

Svo á laugardaginn þá vaknaði ég kl.12 og fór í graut og slátur til ömmu hennar Rakelar...hehe það er nokkuð gott sko, svo var ég bara e-h að hangsast þangað til að uppáhaldsfrændur mínir þeir Andri og Fannar komu í heimsókn, svo hékk ég bara með þeim alla helgina...fórum að sjálfsögðu í Fifa Street keppni í playstation (mæli eindregið með þeim leik);) og ég held að ég hafi lent í 2 sæti sko af 3 ...það er ásættanlegt svona miðað við að keppa við 2 stráka, ekki það að þeir séu eitthvað betri en stelpur þeir HALDA það bara alltaf, þessvegna er svo gaman að monta sig af því að vinna þá :D hehe..Kíktum síðan í bíó á Pink Panther þar sem að Joe-Nine joinaði okkur og ég held ég mæli bara með þeirri mynd, ég sko hló endalauuust hún er svo fyndin, ég svosem hafði ekki gert mér miklar vonir með myndina þar sem ég hélt að þetta væri einhver teiknimynd eða eitthvað, eeen svo var ekki!:) Og síðan chilluðum við bara eitthvað uppá herbergi þangað til við fórum að sofa, svo í dag þá var það bara vinna kl. 12-4 á einhverju móti í Hamri og svo horfði ég bara á Fjarðabyggð-Völsung.....þokkaleg helgi bara....;) spurning um að henda inn örfáum myndum af mongólitunum sem voru í heimsókn! :D

 

Ég og Fannar alltaf hress;)

 

Er þetta ekki einum of náið? hahaa :haha:  (ok, þetta var sviðsett)

 

Eins og sjá má þá er lífið alveg að fara með okkur hérna á vistinni!!!

 

Að sjálfsögðu er það ein mynd af sætustu frændsystkinum í heimi ;) ...þetta er í ættinni!

 

Endum þetta af einni mynd af heimilislífinu! kannski ástæðan fyrir því að enginn komi í heimsókn...:haha:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Annars er eikkað minna í fréttum, er að fara suður á föstudaginn með skólanum, nánar tiltekið íþróttabrautinni..;) það verður stuð örugglega, ætlum að fara í fullt af svona íþróttum sem er ekki hægt að fara í á Akureyri, skylmingar,skvass,keilu og svona...:) svo verður líka farið á Idolið, fínt að prufa það svona einusinni, gaman að sjá hvernig það er svona með berum augum!! Ég stefni á að fá mér svona skilti með Snorra mínum, hann er bestur sko...;) Þannig að ...næsta föstudagskvöld á stöð2 milli 8-10 þá verð ég í sviðsljósinu fyrir ykkur sem viljið sjá mig. Þ.e.a.s ef að myndavélin þolir það að mynda svona mikla fegurð ;) mwuhahahahah

 

En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, vildi bara láta ykkur vita að ég væri á lífi..þar sem að síðasta blogg var titlað þann 23.feb...það er nokkuð slappt!! Eeen ég skal taka mig á J 

Bið að heilsa ömmu ykkar

Kv.Petra...

 

 


» 20 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5